Velkomin(n) á
Diskó-heimasíðu Margeirs

Hið árlega diskókvöld Margeirs er ávallt á öðrum í jólum!

Viðtalshornið:
Einkaviðtal Samúels við dj Margeir

Viðtal þetta birtist fyrst í Samúel á haustmánuðum 1977.

"Það er kalt á toppnum..."

Margeir ásamt tveimur bræðrum sínum! Nú um jólin ætlar hinn víðförli plötusnúður Margeir „okkar“ að heiðra okkur með nærveru sinni og halda sína árlegu jólatónleika á klakanum þrátt fyrir að vera í þeirri aðstöðu að geta haldið þá hvar sem er; París, Nýju Jórvík, Lundúnum eða Hollywood.

  En hvað segir týndi sonurinn yfir því að vera komin heim?
„Mér finnst frábært að vera á Íslandi. Þar get ég gengið um göturnar og fengið að vera nokkurn veginn óáreittur“.

Ég hef líka tilfinningar
  Nú ert þú tilnefndur í keppninni um Herra Samúel, hvernig tilfinning er það?
„Þetta er náttúrulega ekki í fyrsta sinn sem ég er tilnefndur í svona keppni og ef ég færi að kippa mér upp við það í hvert skipti þá gerði ég lítið annað. Ég er þó orðinn töluvert þreyttur á því þegar konur hlutgera mig. Ég vil að það sé horft framan í mig þegar talað er við mig. Ég er ekki bara hrátt kjötstykki sem kann að bítskipta, ég hef líka tilfinningar.“

Kvikmyndaleikur rökrétt framhald
  Nú hafa heyrst sögur um gylliboð kvikmyndaframleiðenda, er eitthvað hæft í þeim?
„Ég fæ auðvitað allskyns tilboð um hitt og þetta. Ég get hvorki játað né neitað þessum sögusögnum en kvikmyndaleikur er óneitanlega rökrétt framhald fyrir mann sem hefur áorkað jafn miklu og ég. Þetta er þó ekki auðvelt, pressan er mikil og fólk býst við miklu af mér. Það er erfitt að vera ég.“

Íslensk tónlist - ekki bara Margeir?
  Finnst þér vera gróska í íslensku tónlistarlífi um þessar mundir?
„Það er eitthvað af hæfileikaríku fólki hér. Sem dæmi heyrði ég um daginn í ungri og mjög svo efnilegri söngkonu. Hún heitir Helga Möller og er um þessar mundir að vinna að plötu með Jóhanni Helgasyni sem mér skilst að hafi ekki enn fengið nafn“.

  Eitthvað að lokum?
„Ég hvet alla aðdáendur mína til að verða sér út um miða á diskókvöldið á annan í jólum sem allra fyrst. Ég lofa alvöru skemmtun að erlendri fyrirmynd. Einnig vil ég biðja kvenfólk um að sýna stillingu - engar fljúgandi nærbuxur... a.m.k. ekki á meðan ég er að vinna.“



Margeir spilar ekki á stað nema hann hafi alvöru diskógólf!



Pallborðið

Grein úr 8. tbl. Samúel frá 1977

Útflutningur íslenskrar tónlistar bara óraunhæfur draumur segja útgefendur

Á íslensk tónlist erindi á erlenda markaði?
Nokkrir sérfræðingar vörpuðu fram þessari spurningu á umræðufundi í rúgbrauðsgerðinni fyrir skömmu.

„Framtíðin liggur í því að koma áfram íslenskum plötusnúðum. Við sjáum öll hversu ómetanleg landkynning DJ Margeir hefur verið“ sagði Steinar Berg, útgefandi í Steinum hf. í viðtali við Samúel.

Steinar gerði lítið úr tilraunum íslenskra hljómsveita hingað til og var ekki bjartsýnn á framhaldið: „Það er þekkt stærð í bransanum að framtíðin liggur í barnastjörnum. Á meðan Bandaríkjamenn hafa snillinga á borð við Donnie Osmond sem er að mínu mati bjartasta von tónlistarheimsins, höfum við Íslendingar því miður ekki neitt nema Björk litlu Guðmundsdóttur. Jú, jú hún er voða sæt og allt það en hún syngur því miður bara eins og hvalur“.





Síðan var síðast uppfærð: 26. des. 1977



Sendu Margeiri póst!